Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrot í Bústaðahverfinu um þrjúleytið í nótt. Húsráðandi, sem hafði verið sofandi, vaknaði við læti í eldhúsinu hjá sér og fór að kanna hvað ylli.
Þar inni kom hann að manni sem sat í eldhúsinu og gæddi sér á afgöngum af kvöldverði íbúanna að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Handtók lögreglan hinn soltna innbrotsþjóf er hún kom á staðinn, en ekki kemur fram hvort hann hafi ásælst aðrar eigur húsráðenda.