Fundur Flugvirkjafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins vegna Icelandair hófst núna klukkan fjögur hjá ríkissáttasemjara.
Búast má við að fundurinn standi yfir fram á kvöld og jafnvel lengur. Síðasti fundur viðsemjenda stóð yfir frá klukkan 17 í gær til rúmlega 4 í nótt.
Verkfall flugvirkja hefur staðið yfir síðan snemma á sunnudagsmorgun.