Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og embætti tollstjóra hafa boðað til blaðamannafundar í kl. 16 í dag, en tilefnið er viðamikil, alþjóðleg lögregluaðgerð.
Fram kemur til í tilkynningu frá lögreglu að stór hluti hennar hafi verið framkvæmdur á Íslandi.
Þar segir ennfremur að fundurinn fari bæði fram á íslensku og ensku.
Tekið er fram að engar frekari fréttir af málinu verði veittar fjölmiðlum fyrr en á blaðamannafundinum.
mbl.is mun fjalla ítarlega um málið.