Fimm heppnir áskrifendur Morgunblaðsins unnu ferð fyrir tvo til Stokkhólms í gær en þá var dregið í annað sinn af tíu úr áskriftarleik Árvakurs og WOW air.
Dregið var út með rafrænum hætti í Hádegismóum og sá Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins, um útdráttinn. Vinningshafar voru: Guðbjörg Þorvarðardóttir, Guðbjörg Erla Kristófersdóttir, Bergljót Sigurðardóttir, Jónas Ragnarsson og Pétur Björnsson. Óskar Morgunblaðið og mbl.is þeim innilega til hamingju.
Á næstu vikum eiga áskrifendur Morgunblaðsins möguleika á að hreppa ferð til einhverrar af átta borgum sem eftir eru í áskrifendaleik Morgunblaðsins og WOW Air. Fjallað verður um hverja borg fyrir sig í Morgunblaðinu á hverjum fimmtudegi meðan á leiknum stendur. San Francisco var fyrsta borgin, Stokkhólmur önnur og í framhaldinu koma Cleveland, Barcelona, Tel Aviv, Detroit, Cincinnati, St. Louis, Dublin og Dallas.