Adam tekst á við móður sína, fyllibyttuna og dópistann

María Sólrún með klippurnar á lofti í vinnunni við gerð …
María Sólrún með klippurnar á lofti í vinnunni við gerð kvikmyndarinnar um Adam, unga manninn sem þarf að taka erfiða ákvörðun. Ljosmynd/Úr einkasafni

Við trúðum þessu varla þegar við fengum að vita að myndin okkar hefði verið valin til sýningar á Berlinale, aðalkvikmyndahátíðinni hér í Berlín. Hún er stór og alþjóðleg, ein af A-hátíðunum í heiminum. Þetta er gríðarlega góð kynning fyrir myndina okkar.“

Þetta segir María Sólrún kvikmyndagerðarkona í Morgunblaðinu í dag, en kvikmynd hennar Adam, verður frumsýnd á Berlinale sem fram fer í næsta mánuði og stendur í tíu daga, 15.-25. febrúar.

„Myndin okkar er sýnd undir flokki sem kallast „generations“ þar sem umfjöllunarefnið eða þemað er ungt fólk. Í myndinni okkar er aðalpersónan tvítugur heyrnarlaus strákur, Adam, en hann þarf að takast á við það vandamál að mamma hans er komin með elliglöp vegna þess að hún hefur starfað sem teknótónlistarkona og er búin að drekka of mikið og dópa um ævina, og afleiðingarnar eru þessi glöp. Þegar hún áttar sig á hver örlög hennar gætu orðið vegna þessa, þá biður hún son sinn um að drepa sig, frekar en láta loka sig inni á stofnun. Adam þarf að ákveða hvort hann eigi að standa við þetta loforð, getur hann það og vill hann það?“ segir María Sólrún og bætir við að hún sæki í eigin reynslu að hluta til, því móðir hennar fékk elliglöp fyrir aldur fram.

Sjá viðtal við Maríu Sólrúnu í heild í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert