Dómur verður kveðinn upp yfir íslenska karlmanninum sem situr í fangelsi í Tirana í Albaníu fyrir smygl á kannabisefnum í lok janúar eða byrjun febrúar. Hann mætir fyrir rétt í Tirana, höfuðborg Albaníu, í lok þessa mánaðar og dómur verður kveðinn upp fljótlega eftir það. Að því loknu hefur hann rétt til áfrýjunar.
Utanríkisráðuneytið og ræðismaður Íslands í Albaníu vinna að málinu.
Maðurinn var handtekinn í lok september og hefur því setið inni í fjóra mánuði. Fjölskylda hans hefur heimsótt hann reglulega í hverjum mánuði eða eins oft og reglur fangelsisins leyfa.