Félag atvinnurekenda mótmælir því að hafa ekki fengið beiðni frá atvinnuvegaráðuneytinu um að tilnefna fulltrúa í endurskipaðan samráðshóp um endurskoðun búvörusamninga.
Í bréfi sem FA sendir Kristjáni Þór Júlíussyni landbúnaðarráðherra segir að með því sé svikið loforð sem gefið var við meðferð laga um búvörusamninga á Alþingi.
Tekur FA undir gagnrýni ungra bænda á að ráðherra „hverfi frá breiðu samráði um búvörusamningana og hverfi til fortíðar, þar sem fáir koma að borðinu.“