Brotist inn á tveimur stöðum

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Tvö innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Annað að Bíldshöfða og hitt í Logafold. Bæði málin eru í rannsókn lögreglu. Jafnframt var tilkynnt um manneskju sem var kíkja inn um glugga í Melbæ um miðnætti. Lögregla ók um svæðið án árangurs.

För þriggja ökumanna var stöðvuð í nótt, öll tilfellin á milli eitt og tvö. För ölvaðs ökumanns var stöðvuð við Frakkastíg og um svipað leyti var réttindalaus ökumaður stöðvaður við Hverafold.

Um tvö í nótt var ökumaður stöðvaður í akstri í Jafnaseli og reyndist hann vera undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Við nánari skoðun kom í ljós að hann var réttindalaus að auki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert