Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Arnarnesvegi aðfaranótt sunnudagsins 21. janúar hét Pétur Olgeir Gestsson. Hann var 21 árs og búsettur í Kópavogi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.
Slysið varð um hálfþrjú aðfaranótt sunnudagsins. Var bifreið ekið vestur Arnarnesveg og hafnaði hún á steinvegg á hringtorgi á brúnni yfir Reykjanesbraut. Var maðurinn einn í bílnum.