Óvissustigi hefur verið lýst yfir á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum en gul viðvörun gildir fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland og Faxaflóa í dag.
Það hvessir af austri síðdegis í dag með snjókomu og skafrenningi á fjallvegum sunnan- og suðvestanlands en rigningu á láglendi.
Spár gera ráð fyrir austan 15 - 23 m/s og því að vindhviðum fari upp í 35 m/s á Kjalarnesi, undir Hafnarfjalli og undir Eyjafjöllum, einkum frá kl. 19.00 til kl. 02.00.
Það mun rigna á láglendi frá því um klukkan 18.00 og fram undir morgun en talsverð rigning verður suðaustanlands í dag og á Austfjörðum í kvöld og fram eftir morgni.
„Suðaustan 15-23 m/s, hvassast í efri byggðum og á Kjalarnesi. Lausamunir geta fokið. Slydda í fyrstu, síðar rigning og hlýnar. Ráðlegt er að huga að því að rigningar- og leysingarvatn komist sína leið í fráveitukerfi til að fyrirbyggja vatnstjón,“ segir á vef Veðurstofu Íslands.