Á aðalfundi Viðskiptaráðs Íslands í síðustu viku var samþykkt að leiða í lög ráðsins ákvæði um kynjakvóta í stjórn.
Framvegis verður því gerð krafa um að hlutfall hvors kyns í stjórn ráðsins sé ekki lægra en 40%.
„Með breytingunni vill Viðskiptaráð tryggja fjölbreytta samsetningu stjórnarinnar og sýna gott fordæmi í íslensku viðskiptalífi,“ segir í fréttatilkynningu. Í nýkjörinni stjórn Viðskiptaráðs fyrir tímabilið 2018 til 2020 eru kynjahlutföll nánast jöfn, 47% konur og 53% karlar.