Reykjanesbrautinni var lokað fyrir umferð nú um hálfátta, en ástandið þar var farið að verða slæmt að sögn Davíðs Más Bjarnasonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Einnig er búið að loka á umferð um Kjalarnesið þar sem einnig var orðið verulega hvasst.
Áður var búið að loka á umferð um Hellisheiði, Sandskeið, Þrengslin, Mosfellsheiði og Nesjavallaleið. Þá var veginum um Lyngdalsheiði lokað klukkan 7 og einnig er búið að loka Grindavíkurvegi.
102 björgunarsveitarmenn voru til taks nú á áttunda tímanum í morgun og manna þeir m.a. lokanir vega.
„Það voru farnar að koma tilkynningar frá vegfarendum um að bílar séu farnir að kastast til á Reykjanesbrautinni,“ segir Davíð Már.
Fyrstu tilkynningar björgunarsveita um verkefni bárust inn rétt fyrir klukkan sjö. „Þá komu inn tilkynningar um fasta bíla í Þrengslunum, við Esjumela og Sandskeið.“
Um sexleytið í morgun voru 70 manns komnir í hús björgunarsveitanna víðs vegar um höfuðborgarsvæðið og voru tilbúnir í verkefni. Um svipað leyti fóru hópar í fyrirframákveðnar lokanir, en lokun nokkurra vega til viðbótar hefur síðan bæst við.