„Þetta er smá tilraunastarfsemi hjá okkur. Við prófuðum þessar merkingar á tveimur bílum og ætlum að sjá hvernig mönnum líst á þetta,“ segir Kári Gunnlaugsson yfirtollvörður.
Embætti tollstjóra fékk tvo nýja Skoda Octavia-bíla um áramótin og fengu þeir öðruvísi merkingar en tíðkast hafa til þessa.
„Þessar merkingar eru meira í stíl við það sem tíðkast í Bretlandi og á Norðurlöndum. Við höfum verið með svarta hliðarrönd á bílunum til þessa en nú erum við með stærri fleti og litirnir eru gulur og svartur. Þetta er aðallega gert til að bílarnir verði auðþekkjanlegir,“ segir Kári í Morgublaðinu í dag.