Veðurhvellurinn sem ganga á yfir landið í dag hefur þegar raskað flugáætlun. Þannig hefur morgunflugi Air Iceland Connect til og frá Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum nú verið frestað. Vélarnar áttu að fara í loftið á tímabilinu milli sjö og níu í morgun, en næstu upplýsingar um flug verða veittar kl. 11.30.
Röskun verður einnig á millilandaflugi að því er fram kemur á vef Isavia, og hefur flugi þeirra véla sem fara áttu í loftið á tímabilinu frá hálfníu til ellefu verið frestað og er nú gert ráð fyrir að þær séu að fara í loftið á tímabilinu frá ellefu til hálftvö í dag.
Er flugfarþegum bent á að fylgjast vel með. Það er m.a. hægt að gera á vef Keflavíkurflugvallar.
Veðurstofan sendi í gær frá sér appelsínugula viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð og Norðurland vestra. Þá er búist við því að hviður geti orðið allt að 40 m/s á Reykjanesbraut um klukkan 8 og fram yfir klukkan 10 á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli og á heimasíðu Vegagerðarinnar kemur fram að Reykjanesbraut auk annarra vega verður lokuð fyrri hluta dags.
Gul viðvörun er í gildi alls staðar annars staðar á landinu og er spáð er allt að 23-28 m/s og snjókomu og slæmu skyggni í efri byggðum og austur frá Reykjavík.