Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti fyrir skömmu við Landspítalann með mann sem slasaðist í vélsleðaslysi á Fjallabaki nyrðra nú í morgun. Ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðslin eru.
Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út á tólfta tímanum í dag vegna slyssins, sem átti sér stað í nágrenni Steingils.
Það voru samferðamenn mannsins sem tilkynntu um slysið og voru björgunarsveitir, sjúkraflutningamenn og þyrla Landhelgisgæslunnar í kjölfarið send á vettvang.
Eftir að þyrlunni tókst að lenda á slysstað var öllum björgunarsveitum, utan einnar, snúið við, en sú sveit hélt áfram á slysstað til að aðstoða samferðamenn mannsins.