Innanríkisráðuneyti hefur brugðist við ábendingum Ríkisendurskoðunar með því að tryggja ríkissaksóknara aukin fjárframlög síðustu ár, auk þess sem álag á embættið minnkaði með stofnun embættis héraðssaksóknara árið 2016.
Þetta kemur fram á vef Ríkisendurskoðunar. Þ
ar segir jafnframt, að frá þeim tíma hafi ríkissaksóknari haft aukið svigrúm til að skerpa á stjórnunar- og eftirlitshlutverki sínu. Þá hyggst ráðuneytið fela réttarfarsnefnd að meta hvort og þá hvernig skilgreina megi betur sjálfstæði ríkissaksóknara í lögum.
Ennfremur segir, að embætti ríkissaksóknara hafi unnið að innleiðingu verkbókhalds frá því að ábendingin var lögð fram árið 2015.
Innleiðingin hefur tafist en þar sem stefnt er að því að hefja skráningu verkbókhalds í tilraunaskyni í byrjun maí 2018 telur Ríkisendurskoðun ekki ástæðu til að ítreka ábendinguna.