Vegir eru víðast hvar greiðfærir en á Vestfjörðum eru hálkublettir á Steingrímsfjarðarheiði, hálkublettir eru á Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði.
Á Norðausturlandi eru hálkublettir eða snjóþekja og éljagangur með norðausturströndinni. Á Austurlandi eru hálkublettir á fáeinum fjallvegum. Hálka er á Fjarðarheiði. Það er orðið jeppafært í Mjóafjörð á Austurlandi, segir á vef Vegagerðarinnar.