Viðbragðsáætlun Landspítala og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins vegna skertrar þjónustu við sængurkonur og nýbura verður virkjuð á morgun. Í henni felst meðal annars að opna sérstaka móttöku fyrir sængurkonur og nýbura á Barnaspítala Hringsins.
Ljósmæður sem sinna heimaþjónustu hafa verið samningslausar frá 31. janúar. Þær lögðu niður störf á mánudag og ætla ekki að hefja störf aftur fyrr en gengið verður frá nýjum samningi við Sjúkratryggingar Íslands.
Í tilkynningu frá Landspítalanum segir að ljósmæður sem áður voru á samningi við Sjúkratryggingar Íslands munu að svo komnu máli ekki sinna heimaþjónustu við konur og nýbura. Það skapi mikinn vanda sem erfitt er að leysa.
Brugðist verður við vandanum með því að forgangsraða konum á meðgöngu- og sængurlegudeild og á öðrum deildum kvennadeildar eftir bráðleika.
Nýbökuðum mæðrum verður ráðlagt að hafa samband við sína heilsugæslustöð eftir útskrift af Landspítala. Ef upp kemur heilsufarsvandi hjá móður eftir útskrift af Landspítala þá leiti hún til vaktþjónustu heilsugæslunnar.
Þá verður nýburaskoðun flýtt. Í staðinn fyrir hefðbundna fimm daga skoðun munu nýburar koma þriggja daga gamlir á göngudeild Barnaspítala Hringsins. Sett verður upp móttaka með nýburalækni, ljósmóður, sjúkraliða og lífeindafræðingi. „Nýburar verða skoðaðir, vigtaðir, metnir m.t.t. gulu, dregið blóð í nýburaskimun (PKU próf) og metið hvernig brjóstagjöf gengur. Barnið verður einnig heyrnarmælt. Ef talin er þörf á endurkomu nýbura kemur barnið einnig í skoðun fimm daga gamalt,“ segir í tilkynningu. Móttakan verður til staðar alla virka daga og um helgar.
Ung- og smábarnavernd heilsugæslunnar tekur við eftirliti nýbura eftir útskrift af Landspítala sem miðast við 4-6 daga frá fæðingu.
Sjálfstætt starfandi ljósmæður sem sinna heimaþjónustu h0fnuðu drögum að samningi um þjónustu þeirra við sængurkonur sem fulltrúi Sjúkratrygginga Íslands kynnti fyrir þeim í gærkvöldi. Nýr fundur hefur ekki verið boðaður í deilunni. Samningafundur ljósmæðra á stofnunum sem fram fór hjá ríkissáttasemjara í dag lauk án niðurstöðu. Nýr fundur hefur verið boðaður 7. maí.