Innbrot í bílskúr í Keflavík var nýverið tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum.
Þaðan hafði verið stolið sjö rúmum, tveimur ísskápum og þremur skápum.
Sá eða þeir sem þar voru að verki höfðu komist inn í bílskúrinn með því að brjóta sér leið í gegnum hurð á honum. Lögregla rannsakar málið, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.