Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í dag tillögu um innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í Kópavogi. Allir ellefu bæjarfulltrúar voru flutningsmenn tillögunnar sem samþykkt var einum rómi.
Í tilkynningu frá Kópavogsbæ kemur fram að innleiðingin verði unnin í samstarfi við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Unicef. „Ekkert sveitarfélag á Íslandi hefur innleitt sáttmálann þó að þau vinni með margvíslegum hætti í anda hans við að tryggja réttindi barna,“ segir í tilkynningu.
Kópavogsbær verður annað sveitarfélagið á Íslandi sem vinna mun með Unicef á Íslandi að innleiðingu sáttmálans en Unicef er nú þegar í samstarfi við Akureyrarbæ að innleiðingu barnasáttmálans.
Fundur bæjarstjórnar Kópavogs í dag var sá 79. núverandi bæjarstjórnar og sá síðasti á kjörtímabilinu.