Gagnaveita Reykjavíkur, sem leggur ljósleiðarakerfi um land allt í samkeppni við Mílu, hefur fjárfest í fjarskiptum fyrir nálægt 30 milljarða króna að núvirði á síðustu 20 árum, þrátt fyrir að aldrei hafi verið jákvætt fjárflæði af starfseminni.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Jón Kristjánsson, framkvæmdastjóri Mílu, að sem íbúi í Reykjavík hafi hann áhyggjur af fjárfestingarstefnunni.
„Fjárfestingar þeirra á höfuðborgarsvæðinu eru tvöfalt eða þrefalt dýrari en okkar,“ segir Jón og segir að GR muni eiga erfitt með að ná eðlilegri arðsemi af fjárfestingunni.