136 nemendur útskrifuðust frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær. Af þeim voru 74 að útskrifast með stúdentspróf. 22 til viðbótar útskrifuðust sem rafvirkjar, 20 húsasmiðir, 10 snyrtifræðingar, 9 sjúkraliðar og 5 af starfsbraut.
Ræður útskriftarnema voru fluttar af þeim Elíasi Hlyn Lárussyni af íþróttabraut og Sif Þrastardóttur af fata- og textílbraut. Þá söng Karl Friðrik Hjaltason nýstúdent tvö lög og Samúel Stefánsson nýstúdent lék á flygilinn verk eftir Grieg.
Vignir Már Másson, stúdent af félagsfræðabraut, var dúx skólans með meðaleinkunnina 9,03. Hann sópaði að sér flestum verðlaunum en auk viðurkenningar fyrir bestan árangur á stúdentsprófi hlaut hann verðlaun fyrir bestan árangur í ensku, félagsgreinum, íslensku og sagnfræði. Þá hlaut hann styrk úr styrktarsjóði Kristínar Arnalds og menntaverðlaun Háskóla Íslands.