Nýtt borgarhótel á Laugavegi

Nýja hótelið verður í fimm hæða byggingu sem verður vestan …
Nýja hótelið verður í fimm hæða byggingu sem verður vestan við Kjörgarð. Teikning/THG arkitektar

Áformað er að opna 52 herbergja hótel á Laugavegi 55 síðla næsta sumar. Þar verða þrjú verslunarrými á jarðhæð og veitingahús í kjallara. Hjónin Linda Jóhannsdóttir og Ellert Finnbogason munu reka hótelið sem verður undir merkjum dönsku keðjunnar Guldsmeden.

Með því fjölgar Guldsmeden-hótelum á Íslandi en hjónin hófu rekstur hótelsins Eyja Guldsmeden í Brautarholti í Reykjavík árið 2016. Þar eru 65 herbergi.

Þjónustan persónuleg

„Við erum lítil og einbeitum okkur að því að veita persónulega þjónustu. Þegar samkeppnin eykst skiptir máli að standa sig vel í gæðum, þjónustu og upplifun gesta,“ segir Linda sem hefur áhyggjur af samþjöppun á hótelmarkaðnum á Íslandi.

„Stóru keðjurnar hafa verið að kaupa upp minni hótel. Ég hef áhyggjur af því að það dragi úr fjölbreytileika á markaðnum. Við verðum alltaf valkostur fyrir fólk sem kýs minni „boutique“-hótel og því teljum við markað fyrir annað Guldsmeden-hótel í Reykjavík. Við fengum mjög góða staðsetningu við Laugaveg. Samlegðaráhrifin verða töluverð fyrir okkur. Við hjónin störfum í þessu af lífi og sál. Þetta er okkar áhugamál.“

Greinin í heild birtist í Morgunblaðinu í dag.

Linda Jónsdóttir, eigandi Guldsmeden-hótel, og Ellert Finnbogason.
Linda Jónsdóttir, eigandi Guldsmeden-hótel, og Ellert Finnbogason. mbl.is/Arnþór
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert