Sóldýrkendur ekki örvænta

Akureyringar ættu að gleðjast því það er útlit fyrir 20 …
Akureyringar ættu að gleðjast því það er útlit fyrir 20 stiga hita og sól þar á morgun. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

„Í nótt fór lægð yfir landið með tilheyrandi vætu og þungbúnu veðri og við sitjum uppi með leifarnar af þessu veðrakerfi nú í morgunsárið. Sóldýrkendur þurfa ekki að örvænta, því dálítill hæðarhryggur nálgast okkur og mun hann ráða veðrinu á landinu í dag,“ segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.

Það þýðir að vindinn lægir og það styttir upp. Síðdegis verður fremur hæg breytileg átt og bjart á köflum. Með öðrum orðum: á einhverjum tímapunkti ættu allir landsmenn að sjá til sólar í dag, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

„Á morgun er það lægð á Grænlandshafi í samvinnu við hæð austur af landi sem færir okkur suðaustanátt. Vindur verður óþarflega stífur vestanlands og gætu orðið nokkuð snarpar vindhviður við fjöll á Faxaflóasvæðinu og á Snæfellsnesi og varasamt að vera á ferðinni með létta aftanívagna. Lægð morgundagsins nær ekki að senda úrkomusvæði sitt almennilega inn á land, hæðin stendur fast á móti.

Væntanlega mun því einungis rigna að ráði með suðvestur- og vesturströndinni. Á Norður- og Austurlandi verður bjart í sunnanáttinni á morgun og einnig hlýtt, mögulega rofnar 20 stiga múrinn. Á hverju ári eru það gleðileg tímamót þegar fyrst mælast 20 stig á landinu. Gerist það ekki á morgun, er líklegt að það náist á miðvikudaginn, því þá verður áfram hlýtt um landið norðaustanvert.“

Veðurstofa Íslands

Minnkandi vindur og styttir upp í dag, breytileg átt 3-8 m/s síðdegis og bjart með köflum. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast austast.

Suðaustan 10-18 m/s suðvestan- og vestanlands á morgun, skýjað og rigning eða súld við ströndina. Hiti 8 til 14 stig. Suðaustan 5-10 á Norður- og Austurlandi, léttskýjað og hiti að 20 stigum.

Veðurspá næstu daga

Á þriðjudag:

Suðaustan 10-15 m/s suðvestan- og vestanlands, skýjað og rigning við ströndina. Suðaustan 5-10 annars staðar og yfirleitt léttskýjað. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Norður- og Austurlandi. 

Veðurstofa Íslands

Á miðvikudag:
Suðlæg átt 3-10. Skýjað og smásúld eða þokuloft sunnan- og vestanlands með hita 8 til 12 stig. Bjartviðri norðaustantil á landinu og hiti 15 til 22 stig. 

Á fimmtudag:
Hæg vestlæg eða breytileg átt. Skýjað að mestu á landinu og sums staðar súld eða þokuloft, einkum við vesturströndina. Hiti 8 til 15 stig. 

Á föstudag:
Vestlæg eða breytileg átt og rigning eða súld um tíma í flestum landshlutum. Kólnar heldur í bili. 

Á laugardag og sunnudag (sjómannadagurinn):
Útlit fyrir áframhaldandi vestlæga átt. Skýjað og sums staðar þokuloft suðvestan- og vestanlands, en bjart með köflum annars staðar. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á austanverðu landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka