Ráðherranefnd um jafnréttismál hefur lagt til að haldin verði alþjóðleg ráðstefna um #metoo-byltinguna í tengslum við formennsku Íslands í norrænu ráðherranefndinni. Stefnt er á að ráðstefnan fari fram næsta haust.
Þetta er meðal þess sem kom fram á fundi nefndarinnar sem kom saman til fundar í forsætisráðuneytinu í dag í tilefni af kvenréttindadeginum, en í dag eru liðin 103 ár frá því að konur 40 ára og eldri fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis.
„Við erum enn í miðri byltingu í þessum efnum og á ráðstefnunni yrði leitast við að greina áhrifin af #metoo. Ég tel að þetta samtal geti hjálpað okkur að bregðast við ákalli kvenna á Íslandi um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi og áreitni,“ er haft eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í tilkynningu.