Þar kom að því að allir landsmenn fengu að njóta sólarinnar. Sú gula lét sjá sig um allt land í dag og þótt ekki hafi verið mjög hlýtt þar sem vindur stendur af hafi komst hiti á nokkrum stöðum yfir 20 gráður. Mesti hiti á landinu í dag mældist í Árnesi, 20,7 gráður.
Ljósmyndari mbl.is var á ferðinni um Suðurlandið sem skartaði sínu fegursta í sumarblíðunni. Ferðamenn, innlendir sem erlendir, nýttu tækifærið og skoðuðu Gullfoss og snorkluðu í Silfru, svo fátt eitt sé nefnt.
Það var kannski eins gott að gera sem mesta úr deginum þar sem útlit er fyrir heldur leiðinlegt veður, að minnsta kosti sunnan- og vestanlands, næstu daga. Búast má við vaxandi sunnanátt í nótt, 8-15 metrum á sekúndu og rigningu um landið vestanvert.
Þá segir í athugasemd veðurfræðings að varasamt verði fyrir létt farartæki og tengivagna sem taka á sig vind að vera á ferðinni á morgun á norðanverðu Snæfellsnesi og á Vestfjarðakjálkanum, einkum annað kvöld.
Íbúar á Austurlandi og Norðausturlandi mega hins vega áfram búast við bjartviðri og hlýindum, allt að 18 stigum.