Íslendingar í Volgograd fylgdust margir hverjir spenntir með leik Króatíu og Argentínu á stuðningsmannasvæðinu í borginni í kvöld og var stemningin gríðarlega góð er ljósmyndara Morgunblaðsins og mbl.is bar að garði.
Leikurinn endaði 3-0 fyrir Króata og þýðir það að staða íslenska liðsins verður afar vænleg ef góð úrslit nást gegn Nígeríumönnum á morgun.
Mikil gleði virðist vera ríkjandi hjá íslenskum stuðningsmönnum í borginni og við hér á mbl.is vonum bara að fólk gangi hægt um gleðinnar dyr í kvöld og verði í góðu standi á leiknum á morgun.