Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á Snæfellsnes fyrr í dag vegna karlmanns sem slasaðist við fall af hestbaki. Vegna alvarleika áverka mannsins var talið öruggara að kalla út þyrluna en að flytja hann með sjúkrabíl á Landspítalann í Fossvogi.
Ekkert er vitað um líðan mannsins á þessari stundu, segir rannsóknarlögreglumaður Lögreglunnar á Vesturlandi.