Árekstur varð um klukkan hálf sex á þjóðveginum nálægt afleggjara að Uppsölum rétt vestan við Vatnsdalshóla.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi er um harðan árekstur að ræða. Lögregla og tveir sjúkrabílar hafa verið send á vettvang en ekki hafa fengist upplýsingar um hversu margir slösuðust eða hver tildrög slyssins voru.
Fréttin hefur verið uppfærð.