Björgunarsveitarfólk í Mosfellsbæ var kallað út um fjögur í nótt vegna þess að þakplötur voru farnar að fjúka af húsum í sveitarfélaginu.
Um sex í morgun var björgunarsveitarfólk í Reykjavík einnig kallað út en þakplötur voru farnar að fjúka af húsi við Rauðagerði og eins voru þakplötur farnar að losna á húsum í Mjóddinni.