Stuðningsmenn Frakka, Króata og aðrir áhugamenn um fótbolta eru saman komnir á HM-torginu á Ingólfstorgi og þar var stemningin mikil, enda úrslitaleikur HM í Rússlandi í fullum gangi og leikurinn líflegur frá fyrstu mínútu.
Ljósmyndari mbl.is er á staðnum og fangaði stemninguna, en stuðningsmenn Frakka virðast vera öllu fleiri á torginu en stuðningsmenn Króata. Þeir virðast líka öllu kátari, en Frakkarnir leiða leikinn núna er flautað hefur verið til leikhlés, með tveimur mörkum gegn einu.