Um hálfáttaleytið í gærkvöldi var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um slys við Ingólfsstræti. Þar datt maður á palli fyrir framan veitingahús með þeim afleiðingum að hann fór úr axlarlið.
Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar var hann fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans.
Seint í gærkvöldi var tilkynnt um eld í bíl við Dugguvog í Reykjavík. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór á vettvang og að loknu slökkvistarfi var bíllinn fjarlægður.