Vinnueftirlitið bannaði vinnu á þaki húss við Nethyl 2b í Reykjavík, þar sem lífi og heilbrigði starfsmanna var talin hætta búin vegna skorts á fallvörnum.
Unnið var við að mála þak hússins, sem er tvílyft með risi. Engar fallvarnir voru notaðar við verkið er Vinnueftirlitið kom í eftirlitsheimsókn og aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi starfsmanna því ekki í samræmi við lög og reglur.
Á vef Vinnueftirlitsins segir að fyrirtækið hafi nú gert úrbætur í samræmi við gefin fyrirmæli.