Karlmaður sem handtekinn var á Svalbarðseyri í gærmorgun var um hádegi í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til mánudags. Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra fór var fram á gæsluvarðhald yfir manninum í morgun og féllst Héraðsdómur Norðurlands eystra á gæsluvarðhaldskröfuna.
Lögreglunni barst tilkynning um klukkan þrjú í fyrrinótt um mann á Svalbarðseyri sem hefði sést handleika vopn á almannafæri. Vopnaðir lögreglumenn fóru frá Akureyri til að huga að þessu.
Eftir nokkra rannsóknarvinnu bárust böndin að húsi í þorpinu og reyndist maðurinn, sem tilkynnt var um, vera þar. Hann var í annarlegu ástandi en sýndi ekki mótspyrnu og fannst vopnið í fórum hans. Hann var fluttur í fangageymslu en í gær hafði enn ekki tekist að yfirheyra hann.
Rannsókn málsins leiddi í ljós að hann ógnaði að minnsta kosti tveimur mönnum með svokallaðri pinnabyssu, skammbyssu notuð til að aflífa stórgripi. Byssuna er hann grunaður um að hafa tekið ófrjálsri hendi í húsi á Svalbarðseyri. Maðurinn, sem er á fertugsaldri, er einnig grunaður um önnur þjófnaðarbrot og eru þau mál til rannsóknar.