Dr. Ágúst Valfells hefur verið ráðinn forseti tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík frá og með 1. ágúst. Hann tekur við stöðunni af Dr. Guðrúnu Sævarsdóttur sem hefur verið forseti deildarinnar frá árinu 2011.
Ágúst lauk doktorsprófi í kjarnorkuverkfræði frá University of Michigan árið 2000 og prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1993.
Eftir doktorspróf vann Ágúst hjá University of Maryland og Orkustofnun. Frá árinu 2005 hefur hann unnið við kennslu og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík, en Ágúst hefur einkum fengist við rannsóknir á öreindahröðlum og orkumálum.