Innkalla 125 KIA-bifreiðar

mbl.is/Ernir

Bílaumboðið Askja hefur innkallað 125 KIA Niro Hybrid bifreiðar af árgerðinni 2016-2017. Ástæða innköllunar er að orðið hefur vart við galla í rafmagnsvökvakúplingu sem getur valdið olíuleka.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu.

Þar segir, að innkallaðar bifreiðar verði skoðaðar og fyrirbyggjandi aðgerðir framkvæmdar eftir því sem þurfa þykir. Mögulega þarf að skipta út rafmagnsvökvakúplingunni. Skoðun og viðgerð tekur allt frá 30 mínútum en stýrist að öðru leiti af verkinu sem þarf að vinna. Haft verður samband við eigendur umræddra bifreiða bréfleiðis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert