Mildi þykir að ekki fór verr þegar ökumaður sem var á leið um Nesveg í vikunni mætti bifreið sem ekið var á ofsahraða.
Ökumaðurinn fyrrnefndi missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún lenti utan vegar og var óökufær, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Hann og farþegi sem var með honum sluppu ómeiddir.
Þá var bifreið ekið aftan á aðra á Njarðarbraut og kenndi annar ökumannanna eymsla í baki eftir óhappið.
Honum var ráðlagt að leita læknis á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.