Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir hefur tilkynnt um að hún gefi kost á sér til embættis formanns Sambands ungra framsóknarmanna á komandi sambandsþingi sem fram fer daganna 31. ágúst til 1. september.
Í fréttatilkynningu kemur fram að hún er 22 ára og býr í Bakkakoti í Borgarbyggð með maka sínum, Ólafi Daða, og 8 mánaða syni þeirra, Hauki Axel.
Hún er að hefja fjarnám í grunnskólakennarafræðum nú í haust ásamt því að vinna í Grunnskóla Borgarfjarðar. Hún er einnig annar varaþingmaður í Norðvesturkjördæmi fyrir Framsóknarflokkinn.