Brotist var inn í verslun í Breiðholti rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Þegar lögreglu bar að garði voru þjófarnir hins vegar farnir af vettvangi. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.
Tveir menn voru handteknir í efri byggðum í nótt vegna gruns um líkamsársás. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru báðir vistaðir í fangageymslu. Tekin verður skýrsla af mönnunum seinna í dag.
Þá voru fjórir ökumenn stöðvaðir fyrir akstur undir áhrifum á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Tveir reyndust vera undir áhrifum áfengis, en hinir tveir undir áhrifum fíkniefna. Þar að auki hafði einn ökumaðurinn þegar verið sviptur ökuréttindum.