Björgunaræfing við krefjandi aðstæður

Frá björgunaræfingunni.
Frá björgunaræfingunni. Ljósmynd/Aðsend

Samhliða æfingu Atlantshafsbandalagsins, Trident Juncture 2018, ákvað Landhelgisgæslan og danski heraflinn að efna til sameiginlegrar leitar- og björgunaræfingar á Faxaflóa í dag.

Ljósmynd/Aðsend

Áhöfnin á TF-LIF tók þátt í aðgerðum á hafi fyrir hönd Landhelgisgæslunnar en Hvítabjörninn, varðskip Dana, og eftirlitsflugvél danska flughersins tóku sömuleiðis þátt í æfingunni. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð hafði yfirstjórn með björgunaraðgerðum og sameiginleg björgunarmiðstöð Dana á Grænlandi tók einnig þátt, að því er segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Æfingin hófst með því að brúðu var varpað í hafið og var það hlutverk þyrlunnar, eftirlitsflugvélarinnar og varðskipsins að finna hana og staðsetja. Þegar brúðan fannst flaug eftirlitsflugvél danska flughersins að staðnum og varpaði björgunarbáti í sjóinn.

Áhafnarmeðlimir Hvítabjarnarins fóru þá um borð í björgunarbátinn og biðu björgunar. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom þá á vettvang og bjargaði mönnunum og brúðunni. Að því búnu var þeim sem bjargað var komið fyrir um borð í Hvítabirninum þar sem þeim var veitt aðstoð. Að æfingu lokinni var eldsneyti dælt á TF-LIF úr danska varðskipinu.

Ljósmynd/Aðsend

Æfingin í dag var allt í senn leitaræfing, samskiptaæfing og björgunaræfing þar sem reyndi á samvinnu Dana og Íslendinga við krefjandi aðstæður, samkvæmt tilkynningunni.  

Landhelgisgæslan og danski sjóherinn hafa á síðustu árum átt náið samstarf á ýmsum sviðum, þar á meðal við þjálfun áhafna.

„Nauðsynlegt er að halda leitar- og björgunaræfingar sem þessar, þegar tækifæri gefast, í þeim tilgangi að samhæfa viðbrögð við slysum og óhöppum á hafi úti. Æfingin í dag þótti heppnast ákaflega vel en allir aðilar drógu mikinn lærdóm af henni. Æfingin sýndi glögglega hve mikilvægt er fyrir Íslendinga og Dani að vinna saman á Norður Atlantshafi,“ segir í tilkynningunni.

Í áhöfn TF-LIF voru þeir Sigurður Ásgeirsson, flugstjóri, Tryggi Steinn Helgason, flugmaður, Óskar Óskarsson, flugvirki og Jóhann Eyfeld, stýrimaður. Snorre Greil og varðstjórar stjórnstöðvar stýrðu aðgerðum fyrir hönd Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert