Þriggja bíla árekstur varð á Reykjanesbraut við Stekkjarbakka rétt fyrir klukkan fimm í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru tveir fluttir á slysadeild en ekki er vitað um meiðsli þeirra að svo stöddu.
Miklar tafir eru á umferð vegna slyssins en unnið er að hreinsun á svæðinu.