Fólksbíll á leið inn Öxnadal valt eftir að hafa runnið af þjóðveginum vegna hálku rétt fyrir klukkan átta í kvöld.
Lögregla og sjúkraflutningamenn voru sendir á vettvang og voru tveir einstaklingar sem voru í bílnum fluttir til skoðunar á Sjúkrahúsið á Akureyri með minni háttar meiðsl, þetta staðfestir lögreglan á Akureyri.
Lögregla er enn á vettvangi en ekki er talið að tafir séu á umferð vegna atviksins.