Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu fór á fimmta tímanum í dag í útkall vegna elds í rusli og smádóti í Varmadal á Kjalarnesi. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði var í fyrstu talið að um húsbruna væri að ræða. Dregið var úr viðbúnaði eftir að annað kom í ljós.
Slökkviliðið minnir á að óheimilt er að brenna rusl en eldurinn verður slökktur og tilkynnt verður um atvikið til eldvarnareftirlits samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði.