Vegagerðin varar við hálku og hálkublettum víða um land. Meðal annars er hálka á Hellisheiði og Þrengslum. Hálkublettir eru á Þingvallavegi, vegi 36. Það eru hálkublettir á Vatnaleið og í Norðurárdal en snjóþekja á Holtavörðuheiði, éljagangur og snjóþekja á Bröttubrekku og Fróðárheiði
Á Vestfjörðum er snjóþekja eða nokkur hálka á flestum fjallvegum ásamt snjókomu eða éljagangi, þæfingur á Hrafnseyrarheiði. Hálkublettir eru á Strandavegi, vegi 643, og Innstrandavegi, 68, frá Þambárvöllum í Broddanes.
Hálka er á Þverárfjalli og á Vatnsskarði en snjóþekja og éljagangur á Öxnadalsheiði. Hálkublettir eru á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði, Hólaheiði og Dettifossvegi. Hálka er á Hófaskarði.
Hálkublettir eru á Fjarðarheiði. Hálka er í Eldhrauni og við Freysnes en hálkublettir eru við Lómagnúp. Krapi er á Lyngdalsheiði en hálkublettir við Gullfoss.