Talsverð hlýindi eru í kortunum en síðdegis á föstudag fara hitatölur hækkandi um allt land. Spár gera ráð fyrir allt að 12 stiga hita um helgina en veðrið verður best á norðausturhluta landsins.
Þrátt fyrir tveggja stafa hitatölur er spáin ekki spennandi fyrir suður- og vesturhluta landsins.
Rok og rigning verða í þeim landshlutum en til að mynda á að byrja að rigna í höfuðborginni í hádeginu á föstudag og rigna stanslaust alla helgina.
Gríðarmikil hæð verður ríkjandi við norðanverðar Bretlandseyjar vikuna 19. til 25. nóvember. Beinir hún eindreginni sunnan- og suðvestanátt til landsins, með verulegum hlýindum suma daga.
Þetta kemur fram í pistli Trausta Jónssonar veðurfræðings sem hann birti á vefsíðu sinni í gær en hann vitnar í spá Evrópureiknimiðstöðvarinnar. Hann bendir þó á að þetta sé allt í óljósri framtíð og kannski bara skemmtiatriði eins og langtímaspár eru oftast.