Leikarinn og grínistinn Steindi Jr. hefur verið áberandi íslensku sjónvarpi síðasta áratuginn. Hann á marga ógleymanlega karaktera sem skotið hafa upp kollinum hér og þar. Nýjasta afurðin frá honum er bókin Steindi í orlofi sem er hans eigin ferðavísir um heiminn. Ferðabók fyrir forvitið fólk. Steindi sat fyrir svörum í Barnablaði Morgunblaðsins um helgina.
Hvað heitir þú eiginlega fullu nafni?
Steinþór Hróar Steinþórsson. Það voru sett fimm nöfn í pott og dregið um millinafnið. Hin nöfnin í pottinum voru Arnar, Arnór, Helgi og Örvar.
En af hverju Jr. (djúníor)?
Það er af því að ég er skírður á höfuðið á afa og hann kallaði mig alltaf Steinda Jr. og upp frá því festist þetta á mig.
Það er smá pressa að láta Steinþórsnafnið ganga lengra ef ég eignast strák einhvern tímann. Ætli hann verði þá ekki Jr. Jr.
Hvernig kviknaði áhugi þinn á leiklist og gríni?
Mjög snemma eiginlega. Ætli það hafi ekki bara verið þegar ég grunnskóla og gerði fátt annað en að leika mér með vídeóvél. Mig langaði alltaf að verða leikstjóri og ætla eiginlega enn. En við vorum endalaust að gera sketsa félagarnir og það þróaðist í það að ég fór að vera fyrir framan myndavélina. Þannig hófst bakterían.
Ert þú fyrirmynd?
Ég hef aldrei litið á mig sem sérstaka fyrirmynd en ég held að ég sé það samt alveg. Ég held að ég sé ekkert verri fyrirmynd en hver annar.
Varðandi Drauma-seríurnar, hafið þið aldrei meitt ykkur?
Það hefur aldrei neinn slasast alvarlega. Það hafa samt komið upp vafasöm atvik. Við erum ekki beinlínis að ferðast á þessum vinsælu ferðamannastöðum. Erum oftar en ekki að fara ótroðnar slóðir.
Er þetta allt spuni eða eitthvað leikið?
Stigareglurnar eru samdar fyrir fram og búið að ákveða áskoranir. Að öðru leyti er þetta bara alvöru raunveruleikasjónvarp eins og það gerist best. Maður veit aldrei hvernig fólk bregst við uppátækjunum og við þurfum að vinna út frá því.
Hvað hefur þú annars verið að bralla og hvað stendur upp úr?
Mér þykir rosalega vænt um Steindann okkar sem var með því fyrsta alvöru sem ég gerði. Annars er það mjög margt sem hefur verið mjög skemmtilegt, Drauma-seríurnar, Steypustöðin og fleira. Svo hef ég verið að talsetja teiknimyndir og leika í bíómyndum. Það er eitthvað sem mig langar að gera meira af eftir að hafa leikið í Undir trénu. Að fara meira út í drama, ekki bara glens. Það má þó ekki vanmeta grínið. Það er ekkert grín að búa til grín. Svo má ekki gleyma að nefna Áramótaskaupin, þau gengu vel en voru mjög stressandi.
Hvað hefur þú talsett?
Ég talsetti með félögum mínum myndina Ratchet & Clank sem er risamynd frá Sony. Mjög skemmtilegt verkefni.
Hvernig verða karakterarnir þínir til?
Sumir eru byggðir lauslega á einhverjum sem ég hef hitt á lífsleiðinni. Aðrir karakterar verða til á skrifstofunni þegar við erum að skrifa handrit. Þá köstum við fram hugmyndum og leikum einhverjar týpur og þróum þetta svo áfram.
Hvað finnst þér skemmtilegast að leika?
Allt, því erfiðara því betra.
Þú hefur verið andlit Íslands í mikilli kynningarherferð. Hvernig er að vera frægur?
Maður er nú engin stjórstjarna þrátt fyrir að maður sé dálítið þekktur. Það hefur engin áhrif og ég tek lítið eftir því. Kannski finnur maður einna helst fyrir því þegar maður fer í búðina, þá koma stundum krakkar og vilja spjalla. Ég hef bara gaman af því. Svo ef maður fer út á lífið þá hittir maður stundum einhverja ofurhressa sem vilja fara yfir málin. Það er bara gaman.
Ertu með einhvern venjulegan vinnudag?
Já, ég reyni að hafa venjulegan dag frá kl. 9 til 5. Þá erum við að skrifa. Ég stimpla mig ekki inn og út en maður þarf að skila verkefnum á ákveðnum tíma. Maður er alltaf í kapphlaupi við tímann og yfirleitt vinnur maður allan sólarhringinn nokkrum vikum fyrir tökur.
Hvað er fram undan hjá þér?
Nú er ég að skrifa nýja sjónvarpsseríu sem verður sýnd í vor. Það er reyndar hernaðarleyndarmál þangað til þar að kemur. Svo er maður oft að skemmta og nóg að gera. Ég er að gefa út bók sem heitir Steindi í orlofi, hvernig á að fara til útlanda án þess að vera bitinn af ísbirni, rændur af leigubílstjóra og rotaður af lögregluþjóni.
Hvernig datt þér í hug að gefa út bók?
Eftir Drauma-seríurnar þá er alltaf verið að spyrja mig um hitt og þetta. Geta allir synt með hákörlum og baðað sig upp úr sporðdrekum í hinu og þessu landi. Ég ákvað því að gera ferðabók fyrir forvitið fólk. Þetta er eins og minn eigin leiðarvísir um heiminn og hlutir sem ég persónulega mæli með.
T.d. í staðinn fyrir að fara í venjulegan dýragarð þá segi ég frá því hvernig er hægt að fara í barnastökkshátíð á Spáni þar sem hoppað er yfir kornabörn til að særa úr þeim illa anda. Það eru auðvitað ekki allir sem hætta sér á þessar slóðir en þá dugir bara að skoða myndirnar í bókinni. Og bókin er komin í búðir.
Fyrir hverja er þessi bók?
Hún er fyrir alla.
Mín kynslóð og yngri kynslóðin hlæja að bröndurunum en þau allra yngstu munu ekki síður hafa gaman af henni vegna þess að það er mikið af skemmtilegum myndum. Þetta er fullkomin möndlugjöf.
Ert þú alltaf að grínast, og heima hjá þér líka?
Já, ég held að ég sé mjög geðgóður og létt yfir mér. Ég er ekkert með uppistand heima hjá mér öll kvöld en ég grínast mikið í kærustunni minni og dóttur. Yfirhöfuð er mikil stemning heima, enda köllum við heimilið Grínkofann. Það er alltaf góð stemning.
Þú hefur líka sungið fullt af lögum, er eitthvað í uppáhaldi?
Já, lag sem heitir Í góðu skapi. Það var í Steindanum okkar og mér þykir rosalega vænt um það af því það var mjög gaman að taka það upp. Lagið var ein taka og var í skets í þáttunum. Þetta átti að túlka hugsanir ákveðinnar manneskju.
Kanntu eitthvað syngja?
Ég verð betri og betri með hverju laginu sem ég geri. Ég held alveg vissum nótum en svo stóla ég stundum á tæknina. Ég var nú valinn flytjandi ársins á Hlustendaverðlaununum 2011, takið það á koddann í kvöld. Svo snýst þetta mikið til um stemningu, sérstaklega þegar maður er að flytja lögin opinberlega.
Áttu þér einhvern uppáhaldsleikara?
Já, Leonardo DiCaprio. Maður hefur alveg unun af því að horfa á hann leika.
Átt þú þér einhverja fyrirmynd í lífinu?
Ætli það sé ekki bara dóttir mín, einlæg, heiðarleg og hamingjusöm.
Hver eru helstu áhugamálin þín?
Fyrir utan vinnuna eru það tölvuleikir. Ég spila á Playstation 4. Akkúrat núna er ég að spila Red Dead Redemption og Fortnite. Þegar tími gefst finnst mér gott að setjast niður og leika mér. Mér fer reyndar lítið fram en tölvuleikir eru mín hugleiðsla.
Uppáhaldsmatur?
Já, það er hangikjöt með uppstúf. Ég er búinn að fara tvisvar í IKEA nú þegar og fá mér.
Hlakkar þú til jólanna?
Já, mjög. Þetta er uppáhaldstími ársins. Ég á afmæli 9. desember og svo koma jólin. Nú er ég sjálfur kominn með barn þannig að við höldum sjálf okkar eigin jól, litla fjölskyldan. Ég er mikið jólabarn og orðinn mjög spenntur.
Einhver skilaboð til krakka sem vilja ná langt?
Já, byrja að vinna í sínum markmiðum og læra af mistökunum. Ekki lúra á hugmyndunum endalaust, heldur framkvæma hlutina og svo betrumbæta.