Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akranesi hafa verið kallaðar út í morgun vegna lægðarinnar sem nú gengur yfir suðvesturhorn landsins.
Hafa þegar borist á annan tug aðstoðarbeiðna vegna foks á lausamunum, þakplötum af húsum og svo trampólínum.
Eru á milli 30 og 40 björgunarsveitarmenn og -konur nú að störfum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Landsbjörg.
Gert er ráð fyrir að veðrið muni ganga hratt niður upp úr hádegi, en gul viðvörun er nú í gildi fyrir Faxaflóa, Suðurland, Breiðafjörð og Norðurland eystra og segir veðurfræðingur Vegagerðarinnar að búast megi við hviðum allt að 45 m/s undir Hafnarfjalli fram yfir hádegi, en 35 m/s eftir það. Fram undir hádegi verði einnig varasamt á Reykjanesbrautinni með stormi á hlið og hviðum 35 m/s. Á norðanverðu Snæfellsnesi nær vindur í hámarki um hádegi.