Ölvaður karlmaður var handtekinn á Keflavíkurflugvelli fyrr í kvöld en hann hafði brjálast við vegabréfaskoðun. Hann veitti mótspyrnu þegar lögregla hafði afskipti af honum og var því handtekinn og færður á varðstofu.
Þá var tilkynnt um þjófnað úr verslun í Leifsstöð, en aðilinn fannst skömmu síðar í rútu á leið frá flugstöðinni. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.