Störfum Alþingis var frestað nú á föstudaginn eftir að hafa lokið afgreiðslu fjölmargra mála nú í desember, meðal annars fjárlaga. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mætir í þjóðmálaþáttinn Þingvelli í dag og mun þar ræða mál sem hafa verið í gangi og önnur sem eru fram undan, auk ríkisfjármálanna, ríkisstjórnarsamstarfsins og þriðja orkupakkans.
Þátturinn hefst klukkan 10:00 á K100.