Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af ökumanni sem mældist aka á 163 km hraða á Reykjanesbraut í vikunni þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.
Viðurlög við broti af því tagi eru 240 þúsund krónur í sekt, svipting ökuleyfis í þrjá mánuði og þrír punktar í ökuferilsskrá að sögn lögreglu.
Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af fleiri ökumönnum vegna hraðaksturs og annarra umferðarlagabrota. Einn þeirra, sem mældist á 146 km hraða, einnig á Reykjanesbraut, kvaðst ekki geta framvísað ökuskírteini því hann hefði aldrei öðlast ökuréttindi.